Viðtöl við hagsmunaaðila

Viðtöl voru tekin við fimm hagsmunaaðila vefsins, í þessu tilfelli starfsmenn Listasafns Reykjavíkur.

Viðtöl við hagsmunaaðila

Viðtöl voru tekin við fimm hagsmunaaðila vefsins, í þessu tilfelli starfsmenn Listasafns Reykjavíkur sem Áslaug Guðrúnardóttir umsjónarmaður vefsins benti á. Hver nemandi tók viðtal við einn starfsmann.

Undirbúningur fyrir viðtal

Góð ráð fyrir viðtöl:

  • Gott er að senda nokkrar spurningar (ekki allar) í tölvupóst á hagsmunaaðila til að fólk getur undirbúið sig 
  • Kanntu að taka upp viðtalið á TEAMS/Zoom/annan búnað? (gott að prófa áður en mætt er á staðinn)
  • Taka viðtöl á stað sem er prívat og ekki hávaði (ekki í opnu vinnurými t.d.)

Góð ráð þegar tekin eru viðtölin:

  • Ágætt að koma með tvær byrjunar spurningar um starf og hlutverk starfsmanna og hvort og hvernig viðkomandi kemur að vefnum. Þó svo að þær spurningar séu ekki með í niðurstöðum heldur bara til að opna samtalið
  • Láta viðkomandi vita hvert markmiðið er með viðtalinu
  • Láta viðkomandi vita að hann/hún geti verið opin og talað að vild (við munum ekki vitna ekki í neinn sérstaklega, efni verður haldið innan hópsins)
  • Í lokin láta viðkomandi vita ef það er eitthvað sem þeim dettur í hug eftir á að þá er alltaf hægt að senda tölvupóst

Allir fengu svo eftirfarandi spurningar:

  1. Hversu mikið/oft notar þú vefinn? 
  2. Til hvers notar þú vefinn? / Hvað ertu helst að gera á vefnum?
  3. Hvernig skoðar þú vefinn? (Í tölvu? Síma?)
  4. Hvernig telur þú að vefurinn gagnist gestum?
  5. Hvað finnst þér tímafrekast að gera á vefnum? / Hvaða vandamál hefur þú tekið eftir í tengslum við vefinn?
  6. Finnst þér auðvelt að finna það sem þú leitar að á vefnum?
  7. Hvað finnst þér vel gert á vefnum?
  8. Hvað mætti bæta á vefnum?
  9. Hverjar eru þínar væntingar til vefsins? / Hvernig sérðu fyrir þér vel heppnaðan og fullkláraðan vef?
  10. Hvað er það helsta sem þú sérð að geti staðið í vegi fyrir velheppnaðan vef?
  11. Er eitthvað sem þú hefur áhyggjur af í sambandi við þetta verkefni?
  12. Hvernig sérðu fyrir þér að það verði breytingar á starfseminni / þinni vinnu, ef einhverjar? 
  13. Getur þú komið með þrjú orð sem þér finnst lýsa Listasafni Reykjavíkur?
  14. Hefur þú skoðað aðra sambærilega vefi til samanburðar og ef svo er, hvaða mun sérðu helst á þeim vefum og vef Listasafns Reykjavíkur?
  15. Eitthvað að lokum?

Samantekt:

Tekin var saman samantekt á öllum svörum sem er að finna hér.

[happyforms id="458" /]